Eldibrands
Enja "Enja okkar kvaddi í dag. Hún var komin með æxli í þarma og það var ekkert hægt að gera annað en leyfa henni að fara. Enja var mikill gleðigjafi, gullfalleg og sterkur karakter. Hún hljóp á eftir leikfangamusum ef við köstuðum þeim og kom með þær til okkar aftur eins og hundur. Á morgnana beið hún eftir að ég færi í slopp og þá klifraði hún upp á axlirnar á mér og lá þar og malaði meðan ég burstaði tennurnar og bjó til kaffi :) Á Íslandi hafði hún verið innikisa að mestu en eftir að við fluttum til Noregs varð hún útikisa og uppgötvaði veiðieðli á miðjum aldri - færði mér mýs og eitt sinn rottu sem var nálægt henni í stærð, mér til lítillar gleði. Hún sýndi Ilmi endalausa þolinmæði á dúkkufatatimabilinu og umbar endalaust knús og kjass. Það er tómlegt á kattarlausu heimili í dag." |
|
Björgvinjar
Barónessa |
|
Björgvinjar
Ottó |
|
Rockringen´s
Graffiti |
|
PR
Stjörnu Bjartur |
|
IC
Rauðhóla Vilja/Lea Fædd:28.júní 2010 Dáin: 30. ágúst 2017 Eigandi: Karla Dögg Karlsdóttir |
|
Ljómi
Snær |
|
CH
Rauðhóla Ilmur |
|
Úlfhams
Aska Fædd: 9. október 2008 Dáin: 8. nóvember 2016 Eigandi: Vigfús Eyjólfsson |
|
Vinalegi
Viktor á Hlíðarenda Fæddur: 25. nóvember 2014 Dáinn: 1. nóvember 2016 Eigandi: Inga Dís Guðmundsdóttir Viktor, barnabarnið hennar Möggu lenti fyrir bíl skömmu eftir að hún dó. Eins og amma sín var hann ljúfur og góður og veitti eigendum sínum margar góðar stundir. |
|
Magnaða
Margrét á Hlíðarenda Hvíl
í friði ljúfasta Magga, við gleymum þér
aldrei. |
|
Björgvinjar
Karitas (Tessa) Fædd: 22.11.2001 Dáin: 2016 Eigandi: Hulda Elsa Björgvinsdóttir |
|
Björgvinjar Glóbrá Glóbrá er búin að kveðja okkur
eftir langt og gott líf hjá Erlu. |
|
Eldibrands Dögun |
|
Eldibrands Esmeralda
|
|
GIC (N)Benzn Amanda Amanda okkar kvaddi okkur mjög snögglega eftir skammvinn veikindi. Hennar er sárt saknað. |
|
IP
ÍS*Rauðhóla Ýmir |
|
ÍS*Rauðhóla
Álfur Klói Fæddur: 6. desember 2003 Dáinn: 28. maí 2015 Eigandi: Magnea Rut Hákonardóttir Mig langar að minnast Klóa (Rauðhóla Álfur Klói) sem kvaddi þennan heim 28 maí 2015 eftir veikindi. Klói kom til okkar tveggja ára frá fyrrum eigendum vegna fluttninga. Við byrjuðum á því að passa hann í nokkrar vikur sem urðu að tíu árum. Klói var mjög ljúfur og góður og við gátum ekki beðið um fallegri og elskulegri kisu heldur en Klóa okkar. Við sökknum þín mikið og þykir mjög vænt um allar þær minningar sem að við áttum með þér. Það er orðið mjög tómlegt hérna heima án þín. Fjölskylda þín á Hlíðarvegi 5a |
|
Didriksen
Dís |
|
IC
ÍS*Björgvinjar Salómon Sesar Fæddur: 22.11.2001 Dáinn: 26. júní 2015 Eigandi: Maria Wang, Bláskóga kattarækt Núna er svarti kóngurinn okkar ÍS*Björgvinjar Salómon Sesar búin að kveðja okkur. Hann fór á eftir Tiöru sinni til himnaríkis 26.júni 2015. Hann varð bráðkvaddur heima hjá sér, eftir tæp 2 ár með ofvirkan skjaldkirtil. Sesar var vinur allra og fjörugur fram á siðustu stundu. Sesar eignaðist um 18 afkvæmi. Hans er sárt saknað Ch (N)Tiara av Edelman Fædd: 25. maí 2004 Dáin: 23. maí 2015 Eigandi: Maria Wang, Bláskóga kattarækt N*Tiara av Edelmann kvaddi okkur 23. mai 2015, eftir stutt en erfið veikindi. Tiara var stór og mikil læða og algjör drottning á okkar heimili. Hún fæddist 25.mai 2004 í Noregi og eignaðist samtals 8 afkvæmi Hennar er sárt saknað |
|
Frostrósar Bríma Fædd: 29.október 2010 Dáin: 2014 Eigandi:Guðbjörg Hermannsdóttir |
|
|
|
Ernis
Elskulegi Erlendur Fæddur: 18. nóvember 2013 Dáinn: Eigandi: Kristín Holm |
|
IC
Vetrarheims Millennium ("Millie") Fallegasta bláa kisan í heiminum sofnaði svefninum langa 21. janúar 2015. Þó Millie hafði yfir sér einhverja ró var það alltaf hún sem var í stjórnsætinu á heimilinu og sú sem skakkaði leikinn þegar þurfti á milli hinna kattana. Með fallega bláa feldinn sinn og leiftrandi grænu augun sín var hún gullfalleg og líka svo ósköp ljúf. Millie var líka fjörkálfur alveg fram á síðustu vikurnar, hún gat tekið þvílíka hlaupahringi um íbúðina þar sem allt var í hættu, hún brokkaði eftir ganginum alveg hreint ótrúlega þungstíg - minnti okkur oft á brokkandi hest. Elsku besta gamla geit, elsku hjartans Millie - við erum svo þakklát fyrir þessi tæpu 16 ár sem við fengum með þessum hlýja persónuleika og við munum sakna hennar svo mikið. Með henni hverfur líka síðasti Vetrarheims köttuirnn af heimilinu. |
|
S*Pax'
Bombax Fæddur: 25.10.2005 Dáinn: 01.10.2014 Í gær var Bombax minn kvaddur eftir nokkurra mánaða veikindi. Hann var krúttkallinn í hópnum. Ljúfur og kelin við alla "heart emoticon". Það eru margir sem eiga eftir að sakna þess að Bombax taki ekki á móti gestum og gangandi. Minningarnar um Bombax eru margar og verð ég ætíð þakklát Jorgen og Lottu fyrir að treysta mér fyrir að veita honum gott og ástríkt heimili. Margrét Birna Garðarsdóttir |
|
Frostrósar
Jasper Fæddur: 18.12, 2012 Dáinn: 11.12, 2014 Elskulegur Sarúman okkar (Frostrósar Jasper) var rifinn frá okkur skyndilega í gær þegar hann lenti undir bíl. Annan eins yndæliskött höfum við aldrei kynnst og hefðum ekkert viljað meira en að hafa hann hjá okkur lengur. Hann var einstakur karakter sem var ljúfur, kelinn og skemmtilegur. Hann var með eindæmum húsbóndahollur og sá til þess að allir kæmust á sinn stað á hverjum morgni. Hann átti það til að fylgja okkur dóttur minni í leikskólann hér rétt hjá og suma daga beið hann þar til við værum búnar og beið þá eftir okkur á ákveðnum stað og gekk með okkur aftur heim. Erla Kristín Jónsdóttir |
|
Vetrarheims
Þula Fædd: 11.06.2003 Dáin: 24.11.2014 Við munum alltaf geyma minninguna um þessa stórkostlegu og fallegu kisu. Hún var og verður Þulan okkar, litli kjánakötturinn sem var alltaf svo fyndin og forvitin. Við munum sakna hennar innilega. |
|
Mýrar
Mugison Fæddur: 28. nóvember 2011 Dáinn: 28. maí 2014 Eigandi: Hulda Hlín Sigurðardóttir |
|
Svala
Svandís á Hlíðarenda Fædd: 27. desember 2013 Dáin: Eigandi: Hafdís Björk Laxdal |
|
Björgvinjar
Una Rós (Músa) Fædd: 22.10.1998 Dáin: 24.01.2014 Eigandi: Sigrún Þorsteinsdóttir Músu er sárt saknað af öllum á heimilinu, bróður hennar Björgvinjar Dýra og Nónó húskisa sem hefur fylgt henni í 15 ár. Þau voru bestu vinir og Nónó átti verulega erfitt dagana eftir að hún kvaddi. En við eigum öll góðar minningar um yndislega kisu og ég hugsa til hennar daglega og þakka henni fyrir góðar og skemmtilegar stundir. |
|
PR/GIC Rauðhóla Urður Fædd: 6.des, 2003 Dáin: 30. desember 2013 Eigandi: Hildur Karlsdóttir Yndislega kisan okkar hún Rauðhóla Urður kvaddi 30. desember 2013. Það kemur enginn í hennar stað, en við huggum okkur með fallegu dætur hennar, Rauðhóla Hyndlu og Korku og dótturdótturina Vöku. Vertu kært
kvödd ljúfasta Urðurin okkar. |
|
Ravnklos
Snekker Andersen Fæddur: 16.mars 2010 Dáinn: 23. des. 2012 Eigendur: Jóhanna Marta og fjölskylda |
|
Didriksen
Perla Fædd: 4.desember 2004 Dáin: 12. ágúst 2013 Eigandi: Gunnhildur Anna Sævarsdóttir Perla var svæfð vegna veikinda, sýklalyf voru reynd en þau höfðu því miður ekkert að segja og varð litla skottið alltaf veikara og veikara. Minning þín verður geymd í hjarta mínu yndislega Perlan mín, svo blíð og góð en jafnframt með þitt mikla skap. Þú varst svo mikill karakter að öðru eins hef ég aldrei kynnst. Öll þín uppátæki verða geymd í minningunni litli prakkari, t.d. þegar þú nýlega náðir að læsa mig úti á svölum á 3ju hæð og lagðist síðan upp á eldhúsborð sigri hrósandi (vissir að sjálfsögðu að þú mættir ekki vera upp á eldhúsborði). Þú skilur eftir þig stórt tómarúm á heimilinu en ég mun reyna að fylla upp í það með yndislegum minningum okkar saman. Með tár í augum kveð ég þig í hinsta sinn, Hvíldu í friði elsku Perla Þín Gunnhildur |
|
Krúttlegi
Kiddi á Hlíðarenda |
|
Vetrarheims
Skógardís Fædd: 11.október, 2004 Dáin: 12. júlí 2013 Eigandi: Ásdís Gunnarsdóttir Elsku Skógardís, það var erfitt að kveðja okkur fannst það svo alltof snemmt. Við ætluðum að njóta þín mörg ár í viðbót. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur Skógardísin mín. Ég veit það var tekið vel á móti þér hinumegin við Regnbogabrúna! |
|
Vetrarheims
Perla Prinsessa Fædd: 11.október, 2004 Dáin: 15. maí 2013 Eigandi: Brynja Björgvinsdóttir Fallega Prinsessan okkar kvaddi okkur í vor tæpu ári á eftir pabba sínum. Sorgin er mikil að kveðja tvær fallegar kisur sem voru ljúfar og góðar með svo stuttu millibili. Það hjálpa aðeins að vita að nú er litla mömmudósin komin til pabba hinumegin við Regnbogabrúna. |
|
Vetrarheims
Vorboði Fæddur:25.maí 1997 Dáinn: 1. júní 2013 Ræktandi:Vilma Kristín Eigandi: Kristen Danielsen, USA Vorboði fæddist í fyrsta gotinu á Íslandi undan 2 innfluttum hreinræktuðum foreldrum. Hann bjó hjá ræktanda sínum þar til sumarið 2000 en þá flutti hann til Bandaríkjanna þar sem hann átti langt og gott líf. Náði 16 ára aldri! Á myndinni hér til hliðar er hann 12 ára. Hvíl í friði Vori minn við Vilma komum alltaf til með að minnast þín. |
|
Capri
frá Dark Queen Fædd:14.júní 2010 Dáin: 10. maí 2013 Eigandi: Guðbjörg Hermanns |
|
IS*
Frostrósar Venus f. 12.11.2011 - d. 03.05.2013 Eigandi:Hulda Björg Jónsdóttir Elsku fallega ljúfa Venus okkar varð fyrir bíl og það varð að svæfa hana vegna mikilla áverka. Hennar er sárt saknað af fjölskyldunni sem þarf að finna leið til að fylla upp í tómarúmið sem hún skilur eftir. |
|
SP
IS* Rauðhóla Márus f. 30.11.2002 - d. 16.04.2013 Márus var mikill heiðursköttur. Við erum þakklát fyrir þessi ár sem hann var hjá okkur. Vertu kært kvaddur ljúfi Márus. Haraldur og Rauðhóla fólkið. |
|
Rómantíski
Romero á Hlíðarenda Fæddur: 5.nóvember 2009 Dáinn: 2012 Eigendur: Elín og Árni |
|
Litli
Trítill á Hlíðarenda Fæddur: 5.nóvember 2009 Dáinn: 7.nóvember 2009 |
|
Vetrarheims
Oddný Fædd: 23.05.1999 Eigandi: Halldóra Ingibergsdóttir |
|
Vetrarheims
Fanta Fædd: 21.05.2000 Eigandi: |
|
Ljósálfa
Afródíta Fædd: 06.03.2001 Dáin: 09.10.2012 Eigandi: Heiðrún Bergsdóttir |
|
Úlfhams
Álfsól |
|
Ljósálfa
Blueberry Fæddur: 06.03.2001 Eigandi: Gróa Halldórsdóttir |
|
Vetrarheims
Pepsi Twist Fæddur: 1. maí, 2002 Eigandi: Bergur Ólafsson
|
|
Norðheima
Ivan Fæddur: 27.desember 2004 Eigandi: Telma Björnsdóttir |
|
Frostrósar
Mosi Fæddur: 5. jan. 2007 Eigendur: Fanney Jónasdóttir og Steinþór V. Guðmundsson |
|
Vetrarheims
Álfheiður Uppáhald Fædd: 13.08.1998 Dáin: 2010 Eigendur: Ásta & Atli |
|
Vetrarheims Áslákur Blær Fæddur: 13.08.1998 Dáinn: 2004 Eigandi: Jón Bjarki Bentson |
|
Lucky
af Fly (Isabella) Fædd: 19.02.1998 Daín: 2010 Eigandi: Elísa Björnsdóttir |
|
Björgvinjar
Hannibal Fæddur: 22.10.1998 Dáinn: 2010 Eigandi: Ingibjörg Ingólfsdóttir |
|
Rauðhóla
Mekkín Fædd: 9. nóv. 2006 Eigendur: Hrafnhildur Halldórsdóttir og Elsa Margrét |
|
Rauðhóla
Vöttur Fæddur:28.júní 2010 Eigandi:Inga Rúna Sæmundardóttir, Reykjavík |
|
Lífar
Úlfur Uppáhald Fæddur: 19.nóvember, 2003 Eigandi: María Auður Lífar kattarækt |
|
Didriksen
Kolka Fædd 13. nóvember 2007 Eigandi: Katrín Didriksen Didriksen kattarækt |
|
Didriksen
Kolmar Fæddur: 13. nóvember 2007 Eigandi: Hildur María Magnúsdóttir Akureyri |
|
Didriksen
Amos Fæddur 27. júlí 2007 Eigandi: Hildur Magnúsdóttir; Akureyri |
|
Björgvinjar
Grettir Fæddur: 22.10.1998 Eigandi: Kristín Helga Markúsdóttir |
|
Winston
frá Dark Queen Fæddur:14.júní 2010 Eigandi:Hrafnhildur Birgisdóttir |
|
frá
Dark Queen Conan Fæddur: 5. apríl 2008 Eigandi: Guðmundur Bjarnas |
|
Mýrar
Siggi Sæti Fæddur:13.febrúar 2010 Eigandi:Hrafnhildur Laufey Hafsteinsdóttir |
|
Norðheima
Aramis Fæddur: 18.febrúar 2010 Eigandi: Gyða Jónsdóttir |
|
Frostrósar
Tamino Fæddur: 23.mars 2009 Eigandi: Anna Svandís Svanbergsdóttir, Stokkseyri |
|
Bláskóga
Pavarotti Fæddur: 12. nóvember 2008 Eigendur: JoAnn Önnudóttir og Dröfn Kristmundsdóttir |
|
Björgvinjar
Jómar (Bubbi) Fæddur: 14. nóv, 2003 Dáinn: 25. ágúst 2012 Eigandi: Brynja Björgvinsdóttir Fékk krabbamein og þurfti að svæfa hann. |
|
Vetrarheims
Fresca Fædd: 21.05.2000 Eigandi: María Auður Eyjólfsdóttir Lífar kattarækt |
|
Vetrarheims
Villimey fædd: 13.08.1998 Eigandi: Sigurður H. Einarsson Skaga kattarækt Varð fyrir bíl. |
|
Didriksen
Hera Fædd: 4.desember 2004 Eigandi: Katrín Didriksen Didriksen kattarækt |
|
Didriksen
Alma Fædd 6. des.2005 Eigandi: Katrín Didriksen Didriksen kattarækt |
|
Frostrósar
Tíana Fædd: 23. mars 2009 Eigandi: Jo Ann Önnudóttir/Brynjar Gunnarsson Frostrósar ræktun |
|
Frostrósar
Villimey Von Fædd 23. feb. 2007 Eigandi: Ágúst Freyr Svanbergsson |
|
Vetrarheims
Eris Fædd: 29. nóv. 2006 Eigandi: Kristín Helga og fjölskylda |
|
S*
Aristo Limaz Damita Kay Fædd: 10.03.2001 Innflutt frá "Aristo Limaz " í Svíþjóð, kom til landsins í október 2001. Eigandi: Áslaug Líf Stanleysdóttir Stanley's kattarækt. Fékk krabbamein og var svæfð í desember 2012 |
|
Stanleys
Carmen Bonita Fædd: 25.05.2002 Eigendur: Þórhildur Þorleiksdóttir og Helga Melsted |
|
Stanleys
Samíra Sue Fædd: 25.05.2002 Eigandi: Dröfn Kristmundsdóttir Norðheima kattarækt |
|
Norðheima
Bonita Fædd: 20.apríl 2010 Eigandi: Áslaug Líf Stanleysdóttir Stanley's kattarækt Dó í ágúst 2011 |
|
Gullfoss
Tinna Engill Fædd: 24.desember 2004 Eigandi: Edda Ósk |
|
Valkyrja Fædd: 11. mars 2006 Eigendur: Jo Ann Önnudóttir og Brynjar Gunnarsson Frostrósar kattarækt |
|
Bláskóga
Mia Fædd: 29. apríl 2006 Eigandi: Dröfn Kristmundsdóttir Norðheima kattarækt |
|
Ernis
Frosti
f. 04.nóvember
2012 Frosti
sofnaði og vaknaði ekki aftur. Hann hefur hugsanlega verið
með leyndan fæðingargalla sem við vissum ekki um. |
|
Björgvinjar Sambó (Lilli) f. 02.júní
2004 Var svæfður eftir að í ljós kom að hann var með lifrarbilun. Við minnumst þín og söknum blíðu augnanna þinna Lilli minn. |
|
CH
Birna Birnu mína kvaddi ég eftir að hún veiktist í vor. Hún var ein af fyrstu læðunum mínum og tók sé fljótt þann sess að vera primadonnan á heimillinu. Við áttum góðar stundir fram eftir sumri og ég fékk minn tíma til að kveðja hana. Hvíl þú í friði Birna búbbuskott.
|
|
Vetrarheims
Míana Mey . |
|
Eldibrands Hugrún f. 17.01.2011-d. 20.07.2011 Það
var stingur í hjartað þegar Gréta Rósný
hringdi í mig og sagði mér þau sorgartíðindi
að Hugrún hefði fundist fyrir utan hús hjá
þeim í heldur ljótu ástandi. Því
miður búum við í samfélagi þar sem
illa innrætt og ljótt fólk gengur um sem fær
ánægju eða útrás sársauka með
því að kvelja dýr og aðra sem minni máttar
eru. Blessuð sé minning hennar Hugrúnu minnar. |
|
S*Kopperhatten´s
Irma
Birna Hveragerði |
|
IS*Didriksen Hekla f.5.03.2006-d.18.06.2010 Yndislega
Hekla mín, ég sakna þín svo sárt, elsku
ljúfi sópraninn minn. |
|
Didriksen Loki 4.02.2007-16.01.2011 Eigendur: Inga Lóa og Hannes Elsku Lokalingurinn hljóp í veg fyrir bíl og dó. Söknuðurinn er mikill og sár en minningarnar góðar. |
|
Rauðhóla Korpur 20.11.2009-1.10.2010 Korpur fæddist með hjartagalla. Þegar hann var 10 mánaða þurfti hann að fá að kveðja. Vertu kært kvaddur litli ljúflingur. Hildur og fjölskylda |
|
Bella Fædd:7.júní
2003 Eigandi: Rósalind Hansen Bella var yndislegur köttur og hafði það gott hérna hjá okkur alveg til síðasta dags. Hún var mikið elskuð og dekruð og hennar verður sárt saknað.
|
|
Rauðhóla Erlín Fædd:23.mars
2002 Eigandi: Margrét Birna Garðarsdóttir Þann 18.sept kvöddum við Erlínu okkar. Erlín slasaðist eftir bílslys og var fötlun hennar farin að há henni undir lokinn. Við minnumst ávallt Erlínar sem sérstaks karakters. Hún var ótrúlega yfirveguð og geðgóð. Samdi ávallt vel við alla, menn og dýr. Hennar er sárt saknað úr Eldibrandsfjölskyldunni. Hvíl í friði |
|
IC Pax´s Zizi Quatro Fædd:27.júlí
1997 Eigandi: Áslaug Sturlaugsdóttir Hvíl í friði |
|
Didriksen Gullbrá Fædd:18.janúar
2003 Gullbrá var besta kisu mamma sem hægt var að hugsa sér, sama hvort það voru hennar kettlingar eða fósturbörn. Hennar er sárt saknað. Hrund og Aliosha
|
|
Björgvinjar Úndína 26.11.1999-26.6.2010 Úndína
lést eftir snögg veikindi. Hildur og fjölskylda
|
|
Eldibrands Yllir/Muggur Fæddur:
17.nóvember 2007 Hann Muggur
minn dó í gær þar sem það var keyrt
á hann rétt hjá heimilinu okkar. Mér finnst
þetta meira hræðilegt því að betri kött
var erfitt að finna hann var svo ljúfur og góður.
Hann var mikið matargat og kúrúdýr og ég
held það sé barasta ómögulegt að finna
jafn yndislegan kött og hann. Sem betur fer fann gott fólk
hann og fór með hann á dýraspítalann sem
hafði svo samband við mig og ég gat farið og séð
hann og kvatt hann, ég fæ hann svo til mín í
næstu viku til að jarða hann. Kveðja María Dröfn Egilsdóttir |
|
Vetrarheims Pepsi Blue Fæddur
11. október 2004 Albróðir
hans Atlas saknar hans sárt og einnig feðgarnir þrír
að |
|
Eldibrands Blátoppur Fæddur:17.11.2007 |
|
Blíðfinnur
Funi |
|
Vetrarheims
Kalína Kaja Fædd: 06. nóvember 2008 Látin: 31. júlí 2009 Eigandi Anna María Beck Kalína Kaja lést í bílslysi |
|
Blettur Fæddur: 27. apríl 2009 Látinn: 18. maí 2009 Eigandi Birna Björnsdóttir Fæddur með klofin góm og barðist hetjulega í 3.vikur ofboðslega duglegur strákur. Fékk að drekka gegnum slöngu ofan í maga og var að braggast gífurlega vel þangað til hann fékk lungnabólgu að verða 3.vikna. Eftir 2 daga í súrefnikassa á spítalanum var hann svæfður. Mikill söknuður á heimilinu eftir að hann fór, alger hetja þessi litli kisi. Ástarkv. fjölskyldan í mýrinni |
|
S*Aliosha's
Forni Eldórsson Fæddur: 29. desember 2008 Látinn: 14. mars 2009 Eigandi Hrund Gautadóttir og Aliosha Romero Forni lést eftir snögg veikindi. Hans er sárt saknað. |
|
Vongóða
Vilma á Hlíðarenda Fædd: 6. október 2007 Lést af slysförum í október 2008 Eigendur: Reynir og Rósa |
|
Aliosha´s
Elírós Brimarsdóttir
Fædd
11. mars 2008 |
|
Eldibrands
Njóli Fæddur: 17. nóvember 2007 Lést úr veikindum haustið 2008 Eigandi: Ásta Maack og fjölskylda |
|
Bjartar
Óberon Fæddur 14. ágúst. 2007 Lést 11. september 2008 í bílslysi Eigandi: Hólmfríður Egilsson Elsku hjartans ljúflingurinn og prakkarinn okkar er farinn frá okkur, við söknum hans meira en orð fá lýst. Minning þín verður í hjörtum okkar alla tíð Brattasti strákurinn okkar, takk fyrir að hafa fengið að hafa þig hjá okkur. Hólmfríður, Kristján, Sigurgeir og Sóldís Diljá. |
|
Ljósálfa
Birta Fædd 03. mars 2002 Lést 2006 |
|
Björgvinjar
Seven Fæddur 14. nóv. 2003 Lést 12. ágúst 2008 af slysförum Eigandi: Áslaug Sturlaugsdóttir Söknuðurinn mun dofna en ekki minningarnar um allt það góða sem þú veittir okkur. |
|
Ljósálfa
Veron Fæddur 29. mars 2000 Lést 14. ágúst 2008 af slysförum Eigandi: Gróa Halldórsdóttir
|
|
Didriksen
Tara Fædd 20. júní 2005 Lést 1. ágúst 2008 í bílslysi Eigandi: Ragnheiður Elsku Tara mín Það var svo yndislegt að fá að kynnast þér og eiga með þér allar þessar góðu stundir sem við áttum saman, við höfðum það svo notalegt saman og þú varst svo góð við mig, þú gafst mer svo mikið . Ég vildi óska að stundirnar hefðu verið miklu fleiri, en ég ég þakka fyrir tímann sem við áttum saman. Ég sakna þín óskaplega sárt og hugsa mikið og fallega til þín , minning þín lifir með mér. Tara mín var jörðuð í fallegum garði eftir þetta hörmulega slys, þín er sárt saknað elsku vina. Þín Ragnheiður |
|
Bjartar
Mímas Fæddur 20. maí 2008 Lést af slysförum 17.júlí 2008 Eigandi: Sigrún Margrét Pétursdóttir Elsku Mímas litli með ljónshjartað, þín er sárt saknað elsku músin okkar. Sigrún og Tolli |
|
|
Aliosha´s
Brimar Búason Fæddur 7. apríl 2007 Dáinn 13. júlí 2008 Eigandi: Svanhvít Erla Gunnarsdóttir og fjölskylda Sandgerði Brimar dó vegna eitrunnar. |
Didriksen
Mjallhvít Fædd 22. mars, 2004 Dáinn 17. mars 2008. Eigandi: Katrín Didriksen |
|
Geisla
Sól Fædd 10. mars 2008 Dáinn 10. mars 2008. Eigendur: Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson Sól dó vegna innvortis blæðinga sem orsökuðust af erfiðri fæðingu.
|
|
Úlfhams
Reykur Fæddur: 29. maí 2006 Dáinn 3. desember 2007. Eigendur: Charlotte Pétursson og fjölskylda Reykur dó í bílslysi.
|
|
Eldibrands
Diðrik Fæddur: 5. ágúst 2006 Dáinn 2007. Eigendur: Elísa og fjölskylda |
|
Skaga
Milla Fædd: 14.mars 2005 Milla hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan. Eigandi: Emelía Elín Fransdóttir |
|
Skaga
Katla Fædd: 14.mars 2005 Katla hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan. Eigandi: Nanna Rögnvaldsdóttir |
|
Frostrósar
Flekkur Fæddur 8. júlí 2007 Dáinn nóvember 2007 Eigandi: Anita Hólm Sigurðardóttir |
|
CH
Norðheima Nikita Fædd: 27.desember 2004 Dáin 10. september 2007 Eigandi: Dröfn Kristmundsdóttir
|
|
Didriksen
Grímur Lést af slysförum Fæddur 27. júlí 2007 Dáinn 2007 Eigandi: Katrín Didriksen
|
|
Ástríka
Ásdís á Hlíðarenda Fædd 6. október 2007 Dáin 8. október 2007 Eigandi: Ásdís H. Gunnarsdóttir Elsku litla kisustelpa, það var sárt að missa þig en við munum alltaf muna eftir þér og vitum að þú ert á betri stað núna. |
|
Didriksen
Tindur Lést vegna lifrar og nýrnabilunar Fæddur 5. mars 2005 Dáinn 7. september 2007 Eigendur: Matthildur og Bjarmi Dagur Elsku Zorró okkar, þín er sárt saknað en við vitum að þér líður vel þar sem þú ert núna og við munum aldrei gleyma þér. |
|
Krummi
af Söguslóðum Greindist með ólæknandi sjúkdóm og var svæfður Fæddur: 7. mars 2006 Dáinn: 1. júní 2007 Eigandi: Jón Hörðdal |
|
Gullfoss
Tristan Týr Fæddur 21. feb. 2007 Dáinn 4. júlí 2007 Eigandi: Sandra Clausen Hann Tristan Týr eða Simbi eins og hann var kallaður hér heima lést af slysförum þann 4 júlí síðastliðinn. Var hann þá aðeins 4 mánaða að aldri þessi elska. Uppáhald Simba var það að þrífa húsbændur sína og kela við börnin þó svo þau yrðu stundum of harðhent við hann vegna óvitaskaps. Uppáhalds svefnstaðurinn var baðkerið og að slást við leikfélaga sinn hann Lennon var toppurinn á tilverunni. Var Simbi jarðaður daginn eftir andlátið í fallegum garði við trega og tár. Við kveðjum yndislegan högna, sem var jafn gæfur og hann var fallegur. Sandra, Freyr og fjölskylda. |
|
Gullfoss
Tíbrá Fædd: 21. febrúar 2007 Dó í bílslysi í maí 2007 Eigandi: Dórathea |
|
Vetrarheims
Telma Fædd: 21. maí 2000 Eigandi: Jakob Þór Guðbjartsson |
|
Vetrarheims
Java Fædd 13. ágúst 1999 Eigandi: Nanna Lovisa Zophoníasdóttir |
|
Didriksen
Gríma Fædd 22. mars 2004 Eigendur: Hrund Gautadóttir, Aliosha Romero og Svanhildur Hermannsdóttir Gríma var svæfð vegna nýrnasjúkdóms 3. apríl. 2007. Hún var mjög félagslynd og yndislegri kött er ekki hægt að hugsa sér, hennar er mjög sárt saknað. |
|
Fiskerjenta´s Seljen Fæddur 10. maí 2004 Eigendur: Jo Ann Önnudóttir og Brynjar Gunnarsson Svæfður vegna ólæknandi sjúkdóms 24. jan. 2007
|
|
Didriksen
Emil Fæddur 20.júní 2005 Eigandi: Charlotte Pétursson Dáinn sumarið 2006 Emil lést af slysförum |
|
Rauðhóla
Mærþöll Fædd: 9. nóvember 2006 Dáin: 11. nóvember 2006 Elsku litla Mærþöll fæddist með klofinn góm og var svæfð. |
|
Björgvinjar
Jóvin Fædd: 14. nóvember 2003 Eigendur: Eva Björk og Kristján Hlynur Jóvin lést í bílslysi. |
|
PR
Rauðhóla Purrkur (Krummi) Fæddur: 6.desember, 2003 Dáinn 13. júlí 2006 Eigendur: Vigfús Eyjólfsson og fjölskylda Purrkur lést úr hjartasjúkdómi. |
|
Vetrarheims
prins Fæddur 9. janúar 2006 Svæfður 12. janúar 2006 Hvíldu í friði, elsku prins. |
|
Skaga
Sókrates Fæddur 1. júní 2004 Dáinn í mars 2005 Eigendur: Brynja Birgisdóttir |
|
Rauðhóla
Hlökk Fædd 23. júní 2005 Dáin 11. des. 2005 Eigendur: Heimir Karlsson og fjölskylda Hlökk lést af slysförum, hennar er sárt saknað. |
|
CH
Björgvinjar Dafnis fædd 22. okt 1998 Varð bráðkvödd í svefni 30. okt 2005. Vertu kært kvödd, elsku Dafnis. |
|
Frostrósar
Snælda Fædd 2. des. 2004 Dáin: okt. 2005 Eigandi: Jo Ann Önnudóttir |
|
Frostrósar
Mingus Fæddur 2. des. 2004 Dáin: 2005 Eigandi Elsa Fanney Grétarsdóttir |
|
Ljósálfa
Mjallhvít Fædd: 3.mars.2002 Dáin: 20.júlí 2005 Eigandi: Jóhanna Gunnarsdóttir |
|
Frostrósar
Milla Ýr Fædd 2.desember 2004 Svæfð vegna ólæknandi sjúkdóms 10 júní 2005. Eigandi Anna Þóra Árnadóttir |
|
Björgvinjar
Charmør ("Fróði") Fæddur: 22.10.1998 Dáinn. 4.maí.2005 Eigandi: Jónas Fróði yfirgaf okkur þann 4. maí 2005. Hann átti við nýrnavandamál að stríða. Hans er sárt saknað af eiganda sínum og besta vini. Fróði var ekki allra, en við sem kynntumst honum minnumst hans með hlýju og söknuði. Hvíl í friði Fróði minn. |
|
Vetrarheims
Delphi Fædd: 1.maí 2002 Svæfð eftir bílslys í apríl 2005 Eigandi: Snæfríður |
|
Stanley's
Nanna (Perla) Fædd: 25.11.2001 Dáin: Desember 2004 Eigendur: Lúðvík og Halldóra |
|
Ljósálfa
Ronja Fædd 6.mars 2001 Svæfð desember 2004 Eigandi: Inga Björk Guðmundsdóttir |
|
Gullfoss
- Þór fæddur 18. janúar 2004 dáinn 5. mars 2005. Elsku stóri bangsinn okkar varð fyrir bíl og lést samstundis. Því miður tók það okkur fjölskylduna 10 daga að komast að því, þannig að við sem söknum þín, elsku Þór, svo mikið, gátum ekki kvatt þig, eins og okkur hefði langað til. Þú varst ótrúlega góður og kelinn, besti köttur sem við höfum átt og kynnst. Vaktir mig alltaf á morgnana með kossi og fórst svo rúm úr rúmi og kysstir alla hina til að örugglega allir færi nú á fætur. Við hveðjum þig með mikum söknuði en það er svo margt sem þú gafst okkur, sem mun ylja okkur um langan tíma. Þór, við elskum þig. Fjölskyldan Búðarfjöru 3. |
|
Gullfoss
Aþena Laugardaginn 26.febrúar lenti Aþena í bílslysi. Við skoðun hjá dýralækni kom í ljós að áverkarnir voru svo slæmir að það þurfti að svæfa hana. Það var erfið og sár ákvörðun. Hennar er sárt saknað á heimili okkar og af allri fjölskyldunni. Hún kom til okkar í apríl 2004 sem afmælisgjöf. Eiginlegur eigandi hennar, Andrea Lovísa fékk hana að gjöf á 4ra ára afmælinu sínu. Hún gat endalaust hnoðast, kúrað og leikið við Aþenu. Þær fóru oft í eltingarleik og feluleik. Hún var kelnasta, klárasta, fallegasta og skemmtilegasta kisa sem við höfum kynnst. Jafnvel þeir sem ekki eru miklir kisu-vinir bráðnuðu við að sjá hana og fá hana uppí fang sér.En núna er hún orðin að kisu-engli hjá guði og guð passar hana. Við munum aldrei gleyma Aþenu okkar. |
|
Vetrarheims
Blámi Fæddur: 13. ágúst, 1998 Dáinn: Febrúar, 2005 Eigandi: Halldóra Ingibergsdóttir Lést af nýrnasjúkdómi sem uppgötvaðist mjög seint.Bláma er sárt saknað en alltaf verður hann hérna hjá okkur og hann var lang-besti köttur í heimi. |
|
(N)
IC Garbriela av Oseberg Fædd: 16. september, 1994 Dáin: 25. september 2004 Eigandi: Bjorgvinjar-cattery Lést af lungnakrabbameini Fyrsti skógarkötturinn minn og ástæðan fyrir því að við fórum að elska norska skógarketti. Sessí mín við söknum þín sárt, en huggum okkur við að nú eru þið Seven saman á ný. Við sem eftir erum yljum okkur við minningarnar og þær eru margar og góðar! |
|
Vetrarheims
Snæfríður Fædd: 13. ágúst, 1998 Dáin: Ágúst, 2004 Lést af slysförum. Eigendur: Magnus og Ester Snæfríður var heyrnarlaus en bætti sér upp þann veikleika með því að vera óvenju gáfaður köttur. Hún var elskuð og dáð af eigendum sínum sem sakna hennar sárt. |
|
Lífar
Jökull Fæddur: 19.nóvember, 2003 Lífar Jökull lést af ólæknandi sjúkdómi í lok júlí 2004 |
|
Tumi fæddur: 21. maí, 2002 Eigandi: Ida Christiansen Tumi lést í bílslysi þann 16.júní 2004 |
|
Ljósálfa
Mjöll Fædd: 03.03.2002 Eigandi: Gróa HalldórsdóttirVar bráðkvödd í svefni. Lést í janúar 2004. |
|
Í
minningu kærra systkina Eldibrands Óma Rökkva og Rauðhettu
Rós Í byrjun nóvember fékk ég þær sorgarfréttir að litla Rauðhetta mín hefði veikst af ólæknandi sjúkdómi og dáið. Nú í byrjun janúar veiktist Ómi Rökkvi af sama sjúkdóm, er talið og lést hann 14. janúar s.l. Rauðhetta Rós og Ómur Rökkvi voru fædd þann 24. maí 2003 Minning þeirra lifir í huga okkar og hjarta. Margrét B. Garðarsdóttir og fósturforeldrar |
|
Stanleys
Hugi Fæddur: 25. nóvember, 2001 Dáinn: 6. janúar, 2004 Eigendur: Lárus og Guðrún Var svæfður með slæma áverka eftir bílslys. Sofðu rótt elsku besti sómakisinn okkar, þín er sárt saknað og við gleymum þér aldrei. Stanleys Magni Fæddur: 25. nóvember, 2001 Eigendur: Lárus og Guðrún Magni hvarf að heiman þann 10 maí 2003 og hefur ekki sést síðan. Vonum að þú sért á góðum stað núna elsku Magni okkar þó við gefum aldrei alveg upp vonina. |
|
Ljósálfa
Felix Fæddur: 3. mars, 2002 Dáinn: 2003 Eigandi: Hrönn Guðjónsdóttir |
|
(N)
IC. Seven Up av Oseberg Fæddur: 5. júlí, 1995 Dáinn: 25. ágúst 2003 Eigandi: Bjorgvinjar-cattery Lést af hjartasjúkdóm. Þú munt ætíð lifa í minningum okkar, elsku karlinn minn.
|
|
Vetrarheims
Pascal Fæddur: 13.08.1998 Eigandi: Valtýr Björn Valtýsson Týndist frá heimili sínu fyrir rúmu ári og hefur aldrei komið aftur. |
|
Ljósálfa
Valiant von Trier Fæddur: 29.03. 2000 Eigandi: Brynhildur S.Thorsteinsson Okkar ástkæri Valiant hvarf af heimili sínu við Hringbraut í Reykjavík vorið 2002. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Við söknum hans enn, hann var engu líkur. Vonandi býr hann hjá einhverju góðu fólki sem kann að meta þennan karakter. |
|
Ljósálfa
Venus 29.03. 2000 - 2.05. 2003 Eigandi: Unnur Eir Magnadóttir |
|
Mína 23.03.03-18.04.2003 Eigandi: Halldóra Ingibergsdóttir |
|
Björgvinjar
Magdalena 26.11.99-05.01.2003 Eigandi: Áslaug Líf Stanleysdóttir Lena dó í bílslysi. |
|
Óríon
Sesar Fæddur: 21. maí, 2002 Dáinn. 8. nóvember, 2002 Dó í bílslysi. Hans er sárt saknað af eigendum og ræktanda.. Eigandi: Gunnhildur Davíðsdóttir |
|
Rauðhóla
Ýma Þöll Fædd: 23.03.2002 Dó í bílslysi haustið 2002. Eigandi: Hrönn Guðjónsdóttir |
|
Björgvinjar
Opus Fæddur: 22. okt, 1998 Dáinn. 30. júlí, 2002 Eigandi: Hisako Imazumi Dó úr gulu eftir mjög stutta sjúkralegu. |
|
Vetrarheims
Hera Fædd: 03.05.2000 Dó um sumarið 2002. Eigandi: Kristín Garðarsdóttir |
|
GIC.
Vintergæk Felis Jubatus Fædd: 09.09.1994 Dáin: 11.07.2002 Eigandi: Vetrarheims - kattarækt Innflutt frá "Felis Jubatus" í Danmörku, kom til landsins í desember 1996. Vintergæk var ákveðin, en jafnframt ljúf dama. Ættmóðir allra hvítra skógarkatta á Íslandi. Elsku Vintergæk, hvíldu í friði, við söknum þín. |
|
Vetrarheims
Máni 01.05.2002-19.07.2002 |
|
Stanleys Sunna Valkyrja 25.11.2001 - 06.2002 Eigandi: Kristbjörg Björnsdóttir |
|
Ljósálfa
Tara 06.03.2001-2002 Eigandi: Kristbjörg Björnsdóttir |
|
Vetrarheims
Mega Vera 03.05.2000-09.2001 Eigandi: Sigurður H. Einarsson Mega Vera lést af slysförum í september 2001. |
|
Björgvinjar
Gimsteinn 26.11.99-14.06.01 Eigandi: Brynja Björgvinsdóttir Gimmi lést af áverkum sem hann hlaut í bílslysi |
|
Vetrarheims
Lotus 1998-2000 Eigandi: Björgvin Þórisson Lotus hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan. Sennilega hefur hún orðið fyrir bíl. |
|
Vetrarheims
Hercules 03.05.2000-01.08.2000 Eigandi: Anna Rögnvaldsdóttir |
|
Hope
af Fly 1998 - 1999 Eigandi : Stefanía Bragadóttir Hope lést eftir stutta sjúkralegu árið 1999. |
|
Vetrarheims
Blundur ("Keli") 1998 - 1999 Eigendur : Jóhann & Jóhanna Keli var dásamlegur hvítur fress, einn í goti og algjört eftirlæti. Hann var blíður og mannelskur, nema þegar kom að dýralæknum. Hann átti gott líf hjá Jóhanni, Jóhönnu og fjölskyldu. Keli lést af slysförum í desember 1999. |
|
Vetrarheims
Vera 1999 - 2000 Eigendur : Sigurður & fjölskylda Vera lést eftir stutta sjúkralegu snemma árs 2000. |
© Skógarkattaklúbbur Íslands